Nokia N81 - Viðbótaröryggisupplýsingar

background image

Viðbótaröryggisupplýsingar

130

Viðbótaröryggisupplýsingar

Lítil börn

Í tækinu og aukahlutum þess geta verið litlir hlutir.
Þá skal geyma þar sem lítil börn ná ekki til.

Vinnuumhverfi

Þetta tæki uppfyllir skilyrði um leyfileg mörk útvarpsbylgna
(RF) við notkun annað hvort í hefðbundinni stöðu við eyra
eða þegar það er haft að minnst kosti 2,2 sm (7/8 tommur)
frá líkamanum. Ef taska, beltisklemma eða hald er notað þegar
tækið er borið á réttan hátt á líkamanum við notkun ætti slíkur
búnaður ekki að innihalda málm og halda ætti tækinu
að minnsta kosti í þeirri fjarlægð frá líkamanum sem
nefnd var hér á undan.

Til að hægt sé að senda gagnaskrár eða skilaboð þarf þetta
tæki góða tengingu við símkerfið. Í sumum tilvikum getur
sending gagna eða boða tafist þar til slík tenging er tiltæk.
Tryggja skal að ofangreindum fjarlægðarfyrirmælum sé fylgt
þar til sendingu er lokið.

Hlutar tækisins eru segulmagnaðir. Málmefni gætu dregist
að tækinu. Ekki má geyma kreditkort eða aðra segulmagnaða
hluti með geymsluminni nálægt tækinu því upplýsingar sem
þar eru geymdar gætu þurrkast út.

Lækningatæki

Notkun búnaðar sem sendir frá sér útvarpsbylgjur, þar
með talin notkun þráðlausra síma, kann að trufla virkni
lækningatækja sem ekki eru nægilega vel varin. Hafa skal
samband við lækni eða framleiðanda lækningatækisins til
þess að komast að því hvort það sé nægilega vel varið fyrir
utanaðkomandi útvarpsbylgjum eða til að afla nánari
upplýsinga. Slökkva skal á tækinu í námunda við
heilsugæslustöðvar ef auglýstar reglur þess efnis kveða á um
að það sé gert. Sjúkrastofnanir eða heilsugæslustöðvar kunna
að nota búnað sem getur verið næmur fyrir utanaðkomandi
útvarpsbylgjum.

Ígrædd lækningatæki

Framleiðendur lækningatækja mæla með því að 15,3 sm
(6 tommu) lágmarksbil sé haft á milli þráðlauss tækis og
ígrædds lækningabúnaðar, eins og gangráðs eða ígrædds
hjartarafstuðstækis til þess að komist sé hjá hugsanlegri truflun
í lækningabúnaðinum. Einstaklingar með slíkan búnað ættu:

Alltaf að halda þráðlausa tækinu í meira en
15,3 sm (6 tommu) fjarlægð frá lækningabúnaðinu
þegar kveikt er á þráðlausa tækinu.

Ekki að ganga með þráðlausa tækið í brjóstvasa

Hafa þráðlausa tækið við eyrað sem er fjær
lækningabúnaðinum til að draga úr líkum á truflunum.

background image

Viðbótaröryggisupplýsingar

131

Ef grunur leikur á að truflun sé að verða skal slökkva
á þráðlausa tækinu tafarlaust.

Lesið og fylgið leiðbeiningum frá framleiðanda ígrædda
lækningabúnaðarins.

Ef þú hefur spurningar um notkun þráðlausa tækisins
með ígræddum lækningabúnaði skaltu hafa samband
við heilbrigðisstarfsfólk.

Heyrnartæki

Tiltekin stafræn þráðlaus tæki geta truflað sum heyrnartæki.
Ef truflun verður skal leita til þjónustuaðila.

Ökutæki

Útvarpsbylgjur kunna að hafa áhrif á rafeindakerfi í vélknúnum
ökutækjum, séu þau ekki rétt upp sett eða ekki nægilega varin,
svo sem rafeindastýrða eldsneytisgjöf, rafeindastýrð hemlakerfi
(með læsivörn), rafeindastýrð hraðakerfi og loftpúðakerfi.
Nánari upplýsingar má fá hjá framleiðanda bílsins eða
búnaðarins sem bætt hefur verið við eða fulltrúa hans.

Aðeins á að fela fagmönnum að gera við tækið eða setja tækið
upp í ökutæki. Gölluð uppsetning eða viðgerð kann að valda
hættu og ógilda hvers kyns ábyrgð sem kann að vera á tækinu.
Ganga skal reglulega úr skugga um að allur þráðlaus
tækjabúnaður í ökutækinu sé rétt uppsettur og vinni rétt.
Ekki má geyma eða flytja eldfima vökva, lofttegundir eða
sprengifim efni í sama rými og tækið, hluta úr því eða
aukahluti með því. Ef ökutæki er búið loftpúða skal hafa
hugfast að loftpúðar blásast út af miklum krafti. Ekki má setja
hluti, þar með talinn uppsettan eða færanlegan þráðlausan

búnað, á svæðið yfir loftpúðanum eða á útþenslusvið
loftpúðans. Ef þráðlaus búnaður í bíl er illa settur upp og
loftpúðinn þenst út getur slíkt orsakað alvarleg meiðsl.

Notkun tækisins meðan á flugi stendur er bönnuð. Slökkva
skal á tækinu áður en gengið er um borð í flugvél. Notkun
þráðlausra fjarskiptatækja í flugvél getur skapað hættu við
stjórn flugvélarinnar, rofið þráðlaust símasamband og verið
ólöglegt.

Sprengifimt umhverfi

Slökkva skal á tækinu á svæðum þar sem hætta
er á sprengingum og fara að öllum tilmælum sem sjást
á skiltum og leiðbeiningum. Sprengifimt andrúmsloft telst
vera á svæðum þar sem yfirleitt er beðið um að drepið sé á vél
bifreiðar. Neistaflug á slíkum svæðum getur valdið sprengingu
eða eldi og haft í för með sér slys og jafnvel dauðsföll. Slökkva
skal á símanum á eldsneytisstöðvum, svo sem við
eldsneytisdælur á bensínstöðvum. Virða skal takmarkanir
á notkun útvarpsbúnaðar í eldsneytisgeymslum, svæðum þar
sem geymsla og dreifing eldsneytis fer fram, efnaverksmiðjum
eða þar sem verið er að sprengja. Svæði þar sem sprengihætta
er mikil eru oftast auðkennd en þó ekki alltaf. Þar á meðal eru
svæði undir þilfari á bátum; svæði þar sem sterk efni eru
geymd eða búin til flutnings; og svæði þar sem í lofti eru
efni eða agnir, til dæmis korn, ryk eða málmduft. Hafa skal
samband við framleiðendur ökutækja sem nýta fljótandi
svartolíugas (svo sem própan eða bútan) til að komast
að því hvort nota megi tækið í grennd við þau.

background image

Viðbótaröryggisupplýsingar

132

Neyðarhringingar

Mikilvægt: Þráðlausir símar, þar á meðal þetta tæki, nota

útvarpsmerki, þráðlaus kerfi, kapalkerfi og notendaforritaðar
aðgerðir. Því er ekki hægt að tryggja tengingar við hvaða
skilyrði sem er. Því skyldi aldrei treysta eingöngu á þráðlaust
tæki ef um er að ræða bráðnauðsynleg fjarskipti,
t.d. í bráðatilvikum.

Neyðarsímtal:

1

Ef slökkt er á tækinu skal kveikja á því. Athuga skal
hvort nægilegur sendistyrkur sé fyrir hendi.
Í tilteknum símkerfum kann að vera farið
fram á að gilt SIM-kort sé rétt sett í tækið.

2

Ýttu eins oft á endatakkann til að hreinsa skjáinn og
gera tækið reiðubúið fyrir símtöl.

3

Opinbera neyðarnúmerið fyrir viðkomandi svæði er valið.
Neyðarnúmer eru breytileg eftir stöðum.

4

Styddu á hringitakkann.

Ef ákveðnar aðgerðir eru í notkun þarf ef til vill að gera þær
óvirkar áður en neyðarsímtal er mögulegt. Ef ótengda sniðið
eða flugsniðið er virkt kann að vera þörf á að skipta um snið
til að virkja símaaðgerðina áður en hægt er að hringja
neyðarsímtal. Nánari upplýsingar má fá í þessari handbók
eða hjá þjónustuveitunni.

Í neyðarsímtali þarf að gefa upp allar nauðsynlegar
upplýsingar eins nákvæmlega og kostur er. Þráðlausa tækið
getur verið eina samskiptatækið á slysstað. Ekki má slíta
símtali fyrr en að fengnu leyfi til þess.

Upplýsingar um vottun (SAR)

Þetta þráðlausa tæki samræmist viðmiðunarreglum
um áhrif af útvarpsbylgjum.

Þráðlausa tækið er útvarpssendir og móttökutæki.
Það er hannað með tilliti til leyfilegra marka um áhrif
af útvarpsbylgjum sem alþjóðlegar viðmiðunarreglur mæla
með. Þessar viðmiðunarreglur voru þróaðar af óháðu
vísindastofnuninni ICNIRP og innihalda öryggismörk sem
ætlað er að tryggja öryggi allra, óháð aldri og heilsufari.

Í viðmiðunarreglum um útvarpsbylgjur þráðlausra tækja
er notuð mælieiningin SAR (Specific Absorption Rate).
Efri mörk SAR, samkvæmt viðmiðunarreglum ICNIRP, eru
2,0 vött/kílógramm (W/kg) að meðaltali á hver 10 grömm
af líkamsvef. Mælingar á SAR eru gerðar í hefðbundnum
notkunarstöðum þegar tækið sendir af mesta leyfða styrk
á öllum mældum tíðnisviðum. Raunverulegur SAR-styrkur
tækis í notkun getur verið lægri en hámarksgildið, þar sem
tækið er hannað til að nota aðeins þann styrk sem þarf til
að ná sambandi við símkerfið. Fjöldi þátta hafa áhrif
á styrkinn, t.d. hversu langt notandinn er frá grunnstöð.
Samkvæmt viðmiðunarreglum ICNIRP er hæsta SAR-gildi
fyrir notkun tækisins við eyra 1,15 W/kg.

Notkun aukabúnaðar getur valdið því að SAR-gildið sé annað.
SAR-gildi kunna að vera breytileg milli landa sökum
mismunandi upplýsingaskyldu, krafna og tíðnisviðs.
Viðbótarupplýsingar um SAR má finna í upplýsingum
um vörur á www.nokia.com

background image

133