Bókamerkjaskjár
Bókamerkjaskjárinn gerir þér kleift að velja vefföng af lista 
eða úr bókamerkjasafni í möppunni 
Sjálfvirk bókamerki
.
Einnig er hægt að slá vefslóð síðunnar sem skoða á beint 
inn í reitinn (
).
táknar upphafssíðuna fyrir sjálfgefna aðgangsstaðinn.
Hægt er að vista vefföng sem bókamerki þegar vafrað er 
á internetinu. Einnig er hægt að vista vefföng sem berast 
í skilaboðum sem bókamerki, og senda vistuð bókamerki.
Til að opna bókamerkjaskjáinn á meðan vafrað er skaltu 
ýta á 
eða velja
Valkostir
>
Bókamerki
.
Til að breyta upplýsingum um bókamerki, svo sem heiti, 
skaltu velja 
Valkostir
>
Stj. bókamerkja
>
Breyta
.
Einnig er hægt að opna aðrar möppur 
á bókamerkjaskjánum. Vafrinn 
Vefur
gerir þér kleift að
vista vefsíður á meðan vafrað er um netið. Í möppunni
Vistaðar síður
er hægt að sjá hvað er á síðunum sem
þú hefur vistað.
Vafrinn
Vefur
geymir líka slóð vefsíðnanna sem þú skoðar
á netinu. Í möppunni
Sjálfv. bókamerki
er hægt að skoða
listann yfir vefsíður sem skoðaðar hafa verið.
Í
Vefmötun
er hægt að skoða vistaða tengla að vefmötun
og bloggi sem þú ert áskrifandi að. Vefmatanir er 
yfirleitt að finna á vefsíðum stærstu fréttastöðvanna, 
á einkabloggsíðum, hjá nethópum sem birta nýjasta 
fréttayfirlit og í greinayfirlitum. RSS- og ATOM-tækni 
er notuð við vefmötun.