Nokia N81 - Leiðbeiningar um sannvottun á rafhlöðum frá Nokia

background image

Leiðbeiningar um sannvottun
á rafhlöðum frá Nokia

Notaðu alltaf rafhlöður frá Nokia til að tryggja öryggi þitt.
Til að tryggja að þú fáir rafhlöður frá Nokia skaltu kaupa
þær hjá viðurkenndum söluaðila Nokia og skoða
heilmyndarmiðann á eftirfarandi hátt:

Þó svo að þessum skrefum sé fylgt nákvæmlega er það
ekki fullkomin trygging fyrir því að rafhlaðan sé sannvottuð.
Ef þú hefur minnstu ástæðu til að ætla að rafhlaðan þín
sé ekki ósvikin Nokia-rafhlaða skaltu ekki nota hana heldur
fara með hana til viðurkennds þjónustu- eða söluaðila Nokia.
Viðurkenndir þjónustu- og söluaðilar Nokia kanna sannvottun
rafhlöðunnar. Ef ekki er hægt að staðfesta sannvottunina
skaltu skila rafhlöðunni til verslunarinnar þar sem þú keyptir
hana.

Sannvottun heilmyndar

1

Þegar þú horfir á heilmyndina
á miðanum ættirðu að sjá
Nokia-handabandstáknið frá einu
sjónarhorni og „Nokia Original
Enhancements“ táknið frá öðru.

2

Þegar þú snýrð heilmyndinni til vinstri,
hægri, upp eða niður ættirðu að sjá
1, 2, 3, eða 4 punkta, allt eftir
staðsetningu hennar.

Hvað ef rafhlaðan er ekki ósvikin?

Ef þú getur ekki staðfest að Nokia-rafhlaðan með
heilmyndinni á miðanum sé ósvikin Nokia-rafhlaða skaltu
ekki nota rafhlöðuna. Farðu með hana til næsta viðurkennda
þjónustuaðila eða sölustaðar Nokia til að fá aðstoð. Notkun
rafhlaða sem eru ekki samþykktar af framleiðanda getur verið
hættuleg. Hún getur jafnframt leitt til þess að tækið og
aukahlutir þess virki ekki sem skyldi eða skemmist. Notkun
þeirra kann jafnframt að ógilda allar þær samþykktir eða
ábyrgðir sem eiga við tækið.

Nánari upplýsingar um ósviknar Nokia rafhlöður er
að finna á www.nokia.com/battery.