Nokia N81 - Hleðsla og afhleðsla

background image

Hleðsla og afhleðsla

Tækið gengur fyrir rafhlöðu sem hægt er að endurhlaða. Hægt
er að hlaða og afhlaða rafhlöðu nokkur hundruð sinnum en að
því kemur að hún gengur úr sér. Þegar tal- og biðtími er orðinn
mun styttri en eðlilegt er skal skipta um rafhlöðu. Aðeins skal
nota rafhlöður sem samþykktar eru af Nokia og aðeins skal
endurhlaða rafhlöðu með hleðslutækjum sem Nokia hefur
samþykkt til notkunar með þessu tæki.

Ef verið er að nota vararafhlöðu í fyrsta skipti, eða ef rafhlaðan
hefur ekki verið notuð í langan tíma, kann að vera nauðsynlegt
að tengja hleðslutækið og aftengja það síðan og tengja aftur
til að hefja hleðsluna.

Taka skal hleðslutækið úr sambandi við rafmagnsinnstungu
og tækið þegar það er ekki í notkun. Ekki má hafa fullhlaðna
rafhlöðnu í sambandi við hleðslutæki þar sem ofhleðsla getur
stytt líftíma hennar. Fullhlaðin rafhlaða tapar hleðslunni smátt
og smátt ef hún er ekki í notkun.

Ef rafhlaðan er alveg tóm geta liðið nokkrar mínútur þar til
hleðsluvísirinn birtist á skjánum eða þar til hægt er að hringja.

Aðeins skal nota rafhlöðuna til þess sem hún er ætluð.
Aldrei skal nota skemmt hleðslutæki eða rafhlöðu.

Gæta skal þess að valda ekki skammhlaupi í rafhlöðunni.
Skammhlaup getur orðið fyrir slysni þegar málmhlutur,
svo sem mynt, bréfaklemma eða penni veldur beinni

tengingu milli + og - skautanna á rafhlöðunni. (Þau líta út
eins og málmrendur á rafhlöðunni.) Til dæmis getur þetta gerst
þegar vararafhlaða er höfð í vasa eða tösku. Skammhlaup milli
skautanna getur valdið skemmdum á rafhlöðunni eða hlutnum
sem veldur tengingunni.

Ef rafhlaðan er skilin eftir í miklum hitum eða kuldum,
til dæmis í lokuðum bíl að sumar- eða vetrarlagi, dregur það úr
afkastagetu hennar og endingu. Æskilegast er að rafhlaðan sé
alltaf höfð í hita á bilinu frá 15°C að 25°C (frá 59°F að 77°F).
Tæki með of heitri eða of kaldri rafhlöðu getur orðið óvirkt um
tíma, þó svo að rafhlaðan sé fullhlaðin. Einkum hefur mikið
frost takmarkandi áhrif á rafhlöður.

Ekki má fleygja rafhlöðum í eld þar sem þær geta sprungið.
Rafhlöður geta einnig sprungið ef þær skemmast. Farga skal
rafhlöðum í samræmi við staðbundin lög og reglugerðir.
Skila skal þeim í endurvinnslu þegar mögulegt er. Ekki skal
fleygja þeim með heimilisúrgangi.

Ekki skal taka sundur eða tæta rafhlöður. Ef rafhlaða lekur má
vökvi hennar ekki komast í snertingu við húð eða augu. Ef slíkt
kemur fyrir skal skola húð eða augu umsvifalaust með vatni,
eða leita til læknis.

background image

Upplýsingar um rafhlöðu

128