Nokia N81 - Umhirða og viðhald

background image

Umhirða og viðhald

129

Umhirða og viðhald

Í tækinu fer saman frábær hönnun og flókin tækni sem fara
þarf gætilega með. Eftirfarandi leiðbeiningar hjálpa til við
að halda tækinu í ábyrgð.

Halda skal tækinu þurru. Úrkoma, raki og hvers kyns vökvar
geta innihaldið steinefni sem tæra rafrásirnar. Ef tækið
blotnar skal fjarlægja rafhlöðuna og leyfa því að þorna
alveg áður en rafhlaða er sett í aftur.

Ekki skal nota tækið á rykugum og óhreinum stöðum né
geyma það þar. Færanlegu hlutirnir og rafrænir hlutar þess
geta skemmst.

Ekki skal geyma tækið á heitum stað. Hátt hitastig getur
dregið úr endingu rafeindatækja, skemmt rafhlöður
og undið eða brætt sum plastefni.

Ekki skal geyma tækið á köldum stað. Þegar tækið hitnar
upp að eðlilegu hitastigi getur raki myndast innan í því
og hann getur skemmt rafrásaspjöld.

Ekki skal reyna að opna símann öðruvísi en tilgreint er
í þessari handbók.

Tækinu skal ekki henda, ekki skal banka í það eða hrista
það. Óvarleg meðferð getur skemmt innri rafrásarspjöld
og fíngerðan búnað.

Ekki skal nota sterk efni, leysiefni til hreingerninga
eða sterk hreinsiefni til þess að þrífa tækið.

Ekki skal mála tækið. Málningin getur fest hreyfanlega
hluti tækisins og komið í veg fyrir að þeir vinni rétt.

Nota skal mjúkan, hreinan, þurran klút til að hreinsa linsur,
líkt og myndavélar-, fjarlægðarnema- og ljósnemalinsur.

Aðeins skal nota loftnetið sem fylgir með símanum eða
samþykkt varaloftnet. Ósamþykkt loftnet, breytingar
á þeim eða viðbætur, gætu skemmt tækið og kunna að
brjóta í bága við ákvæði laga og reglugerða um senditæki.

Nota skal hleðslutæki innandyra.

Alltaf skal taka öryggisafrit af gögnum sem ætlunin
er að halda, t.d. tengiliðum og dagbókaratriðum.

Hægt er að endurstilla tækið af og til og tryggja þannig
hámarksafköst með því að slökkva á tækinu og fjarlægja
rafhlöðu þess.

Þessar ábendingar eiga jafnt við um tækið, rafhlöðuna,
hleðslutækið eða aðra aukahluti. Ef tæki vinnur ekki rétt skal
fara með það til næsta viðurkennda þjónustuaðila til lagfæringar.

Förgun

Yfirstrikuð ruslafata á vörunni, fylgiskjölum eða
umbúðum gefur til kynna að í Evrópusambandinu
verður að farga öllum rafbúnaði og rafeindabúnaði,
rafhlöðum og rafgeymum í þar til gerð ílát. Hendið

þessum vörum ekki með heimilisúrgangi.

Afhendið vörurnar á söfnunarstöðum til að koma í veg fyrir
hugsanlegan skaða á umhverfinu eða heilsu manna vegna
eftirlitslausrar förgunar úrgangs og til að vinna að sjálfbærri
endurvinnslu á hráefnum. Upplýsingar um söfnunarstaði er að
finna hjá söluaðila vörunnar, innlendum sorphirðuyfirvöldum,
ábyrgðarsamtökum innlendra framleiðenda eða hjá innlendum
umboðsaðila Nokia. Nánari upplýsingar er að finna í Eco-
yfirlýsingu vörunnar eða í landaupplýsingum á www.nokia.com.