Stillingar fyrir heimanet
Til að deila skrám með öðrum samhæfum UPnP-tækjum
á þráðlausu staðarneti þarf fyrst að búa til og stilla
internetaðgagnsstað fyrir staðarnetið og svo að stilla
forritið
Heimakerfi
. Sjá „Þráðlaust staðarnet“ á bls. 70
og þráðlausar staðarnetsstillingar í „Aðgangsstaðir“
á bls. 118.
Valkostir í tengslum við
Heimanet
í forritum eru ekki
tiltækir fyrr en stillingarnar fyrir
Heimanet
hafa verið
settar upp.
Tengingar
79
Þegar þú ferð inn á heimanetið í fyrsta skipti opnast
viðkomandi leiðsagnarforrit og sýnir þér hvernig velja
á heimanetsstillingarnar fyrir tækið. Hægt er að nota þetta
leiðsagnarforrit seinna með því að velja
Valkostir
>
Keyra hjálp
á aðalvalmynd heimanetsins og fylgja
leiðbeiningunum á skjánum.
Til að hægt sé að tengjast við samhæfa tölvu um heimanet
þarf fyrst að setja hugbúnaðinn á DVD-diskinum sem fylgir
með tækinu upp í tölvunni.
Stillingar
Heimanets-forritið er stillt með því að velja
Verkfæri
>
Tenging
>
Heimakerfi
>
Stillingar
og úr eftirfarandi:
Heimaaðgangsstaður
—Veldu
Spyrja alltaf
ef þú vilt að
tækið spyrji um aðgangsstaðinn í hvert sinn sem það er
tengt við heimanetið,
Búa til nýjan
til að velja nýjan
aðgangsstað sem notaður er sjálfkrafa þegar
Heimakerfi
eða
Enginn
. Ef ekki er kveikt á neinum öryggisstillingum
fyrir þráðlausa staðarnetið birtist viðvörun. Þú getur
haldið áfram og kveikt á örygginu síðar, sem og hætt
við að tilgreina aðgangsstaðinn og byrjað á því að kveikja
á öryggi netsins. Sjá Þráðlaust staðarnet í „Aðgangsstaðir“
á bls. 118.
Heiti tækisins
—Sláðu inn nafn fyrir tækið sem birtist
í samhæfum tækjum á heimanetinu.
Stillt á samnýtingu og efni tilgreint
Veldu
Verkfæri
>
Tenging
>
Heimakerfi
>
Samnýta efni
.
Samnýting efnis
—Til að leyfa eða leyfa ekki samnýtingu
skráa á samhæfum tækjum. Ekki velja
Samnýting efnis
fyrr en allar aðrar stillingar hafa verið valdar. Ef stillt er
á
Samnýting efnis
geta önnur UPnP-tæki á heimanetinu
skoðað og afritað skrárnar sem þú hefur valið að deila
í möppunum
Myndir & hreyfimyndir
og
Tónlist
.
Myndir & hreyfimyndir
og
Tónlist
—Veldu skrár til
samnýtingar með öðrum tækjum eða skoðaðu
samnýtingarstöðuna í
Myndir & hreyfimyndir
og
Tónlist
.
Til að uppfæra efnið í möppunum skaltu velja
Valkostir
>
Uppfæra efni
.