Mikilvægar öryggisupplýsingar
Þegar þú stillir þráðlaust staðarnet í heimahúsi skaltu 
kveikja á dulkóðuninni í aðgangsstaðatækinu og svo 
í hinum tækjunum sem eru tengd við það. Nánari 
upplýsingar er að finna í fylgiskjölum tækjanna. 
Halda skal öllum númerum leyndum og geyma 
þau á öruggum stað fjarri tækjunum.
Upplýsingar um hvernig á að skoða eða breyta 
stillingunum fyrir netaðgangsstað í tækinu er 
að finna í „Aðgangsstaðir“ á bls. 118.
Ef þú notar sértæka stillingu til að búa til heimanet með 
samhæfu tæki skaltu nota eina af dulkóðunaraðferðunum 
í 
Öryggi þráðl. staðarnets
þegar þú stillir
netaðgangsstaðinn. Þetta minnkar líkurnar 
á að óviðkomandi komist inn á kerfið.
Tækið lætur þig vita ef annað tæki reynir að tengjast við 
það og heimanetið. Ekki samþykkja beiðnir um tengingu 
frá tækjum sem þú þekkir ekki.
Ef þú notar þráðlaust staðarnet á neti sem án dulkóðunar 
skaltu slökkva á samnýtingu Nokia N81 skráa með öðrum 
tækjum, eða velja að samnýta ekki einkaskrár. Til að breyta 
stillingum, sjá „Stillingar fyrir heimanet“ á bls. 78.