Heimanet
Tækið styður UPnP (Universal Plug and Play). Með því að
nota aðgangsstaðartæki eða beini fyrir þráðlaust staðarnet
geturðu búið til heimanet og tengt samhæf UPnP-tæki við
það, líkt og Nokia N81, tölvu, prentara, hljóðkerfi eða
sjónvarp, eða hljóðkerfi/sjónvarp sem er búið þráðlausum
móttakara.
Til að geta notað þráðlausa staðarnetsvalkostinn
í Nokia N81 á heimaneti þarf þráðlaus staðarnetstenging
að vera sett upp í heimahúsi og önnur UPnP-heimatæki
að vera tengd við það.
Tengingar
78
Heimanetið notar öryggisstillingar þráðlausu
staðarnetstengingarinnar. Notaðu heimanet
á þráðlausu staðarneti með aðgangsstaðatæki
og með kveikt á dulkóðun.
Hægt er að samnýta skrár sem eru vistaðar í
Gallerí
í öðrum UPnP-tækjum á heimaneti. Hægt er að stilla
Heimanet
með því að ýta á
og velja
Verkfæri
>
Tenging
>
Heimakerfi
>
Stillingar
. Einnig er hægt að nota
heimanetið til að skoða, spila, afrita og prenta samhæfar
skrár í
Gallerí
. Sjá „Skrár skoðaðar og samnýttar“ á bls. 79.
Mikilvægt: Alltaf skal virkja eina af tiltækum
dulkóðunaraðferðum til að auka öryggi þráðlausrar
staðarnetstengingar. Notkun dulkóðunar dregur úr
hættunni á því að einhver fái aðgang að gögnunum
þínum án heimildar.
Tækið er aðeins tengt heimakerfinu ef þú samþykkir beiðni
um tengingu frá öðru samhæfu tæki eða velur í
Gallerí
þann kost að skoða, spila, prenta eða afrita skrár í Nokia
N81 tækinu.