Nokia N81 - Ytri SIM-stilling

background image

Ytri SIM-stilling

Til að nota ytri SIM-stillingu með samhæfum bílbúnaði
skaltu kveikja á Bluetooth og svo á ytri SIM-stillingu
í tækinu. Sjá „Stillingar“ á bls. 73. Áður en hægt er að
velja þetta verða tækin að vera pöruð saman og kveikja
þarf á pöruninni í hinu tækinu. Við pörun skal nota 16 stafa
aðgangskóða og stilla hitt tækið á leyfilegt. Sjá „Pörun
tækja“ á bls. 74. Kveiktu á ytri SIM-stillingu í hinu tækinu.

Þegar kveikt er á ytri SIM-stillingu í tækinu birtist

Ytra SIM

í biðstöðu. Slökkt er á tengingunni við

þráðlausa símkerfið, og það gefið til kynna með

í sendistyrksvísinum. Þá er ekki hægt að nota þjónustu
SIM-kortsins eða valkosti þar sem tenging við símkerfið
er nauðsynleg.

Þegar ytri SIM-stilling er virk í þráðlausa tækinu er aðeins
hægt að hringja og svara símtölum með samhæfum
aukahlut sem er tengdur við það (t.d. bílbúnaði). Ekki er
hægt að hringja úr þráðlausa tækinu þegar stillingin er
virk, nema í neyðarnúmerið sem er forritað í tækið. Eigi að
hringja úr tækinu þarf fyrst að slökkva á ytri SIM-stillingu.
Ef tækinu hefur verið læst skal fyrst slá inn lykilnúmerið
til að opna það.

Slökkt er á ytri SIM-stillingunni með því að ýta á rofann og
velja

Loka ytri SIM

.