Nokia N81 - Bluetooth-tengingar

background image

Bluetooth-tengingar

Þú getur tengst öðrum samhæfum tækjum þráðlaust með
Bluetooth-tengingu. Samhæf tæki eru m.a. farsímar, tölvur
og aukabúnaður eins og höfuðtól og bílbúnaður. Hægt
er að nota Bluetooth til að senda myndir, hreyfimyndir,
tónlist, hljóðskrár og minnismiða; til að tengjast þráðlaust
við samhæfar tölvur (t.d. til að flytja skrár) eða til að
tengjast við samhæfan prentara til að prenta myndir
með

Myndprentun

. Sjá „Prentun mynda“ á bls. 49.

Tækin þurfa að vera í innan við 10 metra (33 feta) fjarlægð
hvort frá öðru. Truflanir geta þó orðið á tengingunni vegna
hindrana eins og veggja eða annarra raftækja.

Þetta tæki er samhæft við Bluetooth Specification 2.0 sem
styður eftirfarandi snið: Advanced Audio Distribution
Profile, Basic Imaging Profile, Dial-up Networking Profile,
File Transfer Profile, Generic Object Exchange Profile,
Generic Access Profile, Hands-Free Profile, Headset Profile,
Object Push Profile og Serial Port Profile. Til að tryggja
samvirkni milli annarra tækja sem styðja Bluetooth skal
nota aukahluti sem eru viðurkenndir af Nokia fyrir þessa
tegund. Leita skal upplýsinga hjá framleiðendum annarra
tækja um samhæfi þeirra við þetta tæki.

Takmarkanir kunna að vera á notkun Bluetooth-tengingar
á sumum stöðum. Kanna skal það hjá yfirvöldum
á staðnum eða þjónustuveitunni.

background image

Tengingar

73

Aðgerðir sem nota Bluetooth-tækni eða leyfa slíkum
aðgerðum að keyra í bakgrunni meðan aðrar aðgerðir eru
notaðar krefjast aukinnar rafhlöðuorku og minnka endingu
rafhlöðunnar.

Ekki er hægt að nota Bluetooth þegar tækið er læst. Nánari
upplýsingar um læsingu tækisins, sjá „Sími og SIM-kort“,
á bls. 112.