Leiðsagnarforrit fyrir
þráðlaust staðarnet
Leiðsagnarforritið hjálpar þér að koma á tengingu við
þráðslaust staðarnet og vinna með þráðlausar
staðarnetstengingar.
Leiðsagnarforritið sýnir stöðu þráðlausra
staðarnetstenginga í virkum biðham. Til að sjá tiltæka
valkosti skaltu fletta að röðinni sem sýnir stöðuna
og ýta á
.
Ef þráðlaus staðarnet finnast við leit og
Þráðl. staðarnet
fannst
birtist t.d., þá þarftu, til að búa sjálfvirkt til
netaðgangsstað og ræsa vafrann sem notar þennan
aðgangsstað, að velja stöðuna,
Ræsa vefskoðun
og netið.
Ef þú velur varið þráðlaust staðarnet er beðið um að þú
sláir inn viðkomandi lykilorð. Til að tengjast földu símkerfi
þarftu að slá inn SSID-heiti þess. Til að búa til nýjan
aðgangsstað fyrir falið þráðlaust staðarnet skaltu velja
Nýtt staðarnet:
. Þegar búið er að slá inn umbeðnar
upplýsingar er tengingin prófuð sjálfkrafa.
Ef þú ert með tengingu við þráðlaust staðarnet birtist heiti
aðgangsstaðarins. Til að ræsa netvafrann á þessum
aðgangsstað skaltu velja stöðuna og
Halda vefskoðun
áfram
. Til að rjúfa tengingu á þráðlausa staðarnetinu
skaltu velja stöðuna og
Aftengjast v. staðarn.
.
Þegar leit að þráðlausu staðarneti er lokið og engin
tenging við þráðlaust staðarnet er virk birtist
Slökkt
á staðarnetsleit
. Til að ræsa leit og finna tiltæk þráðlaus
staðarnet skaltu fletta að röðinni sem sýnir stöðuna og
ýta á .
Til að hefja leit að tiltækum þráðlausum staðarnetum
skaltu velja stöðuna og
Leita að staðarnetum
. Til að
stöðva leit að þráðlausu staðarneti skaltu velja stöðuna
og
Slökkt á staðarnetsleit
.
Til að opna leiðsagnarforritið fyrir þráðlaus staðarnet
í valmyndinni skaltu ýta á
og velja
Verkfæri
>
St.net.hjálp
.