Nokia N81 - Þráðlaust staðarnet

background image

Þráðlaust staðarnet

Tækið getur tengst við þráðlaus staðarnet. Á þráðlausu
staðarneti er hægt að tengjast við internetið og önnur tæki
sem eru tengd við kerfið. Upplýsingar um notkun tækisins
með öðrum samhæfum UPnP-tækjum um þráðlaust
staðarnet, sjá „Heimanet með galleríi“ á bls. 51
og „Heimanet með tónlistarspilara“ á bls. 21.

Til að geta notað þráðlaust staðarnet verður slíkt net að
vera til staðar og tækið að vera tengt þráðlausu staðarneti.

Í sumum löndum, eins og t.d. Frakklandi, eru takmarkanir
á notkun þráðlausra staðarneta. Frekari upplýsingar má
fá hjá yfirvöldum á staðnum.

Aðgerðir sem byggja á þráðlausu staðarneti eða leyfa
slíkum aðgerðum að keyra í bakgrunni á meðan aðrar
aðgerðir eru notaðar krefjast aukins rafmagns og draga
úr endingu rafhlöðunnar.

Tækið styður eftirfarandi atriðið fyrir þráðlaust staðarnet:

IEEE 802.11b/g staðla

2,4 GHz tíðni

WEP-dulkóðunarstaðalinn (Wired equivalent privacy)
með allt að 128 bita lyklum, Wi-Fi staðalinn (WPA) og
802.1x dulkóðunaraðferðir. Aðeins er hægt að nota
þessa valkosti ef símkerfið styður þá.