Nokia N81 - Útvarp

background image

Útvarp

Ýttu á

og veldu

Tónlist

>

Radio

.

Þegar þú opnar sjónræna útvarpið (Visual Radio) í fyrsta
skipti sýnir hjálparforrit hvernig á að vista staðbundnar
stöðvar.

Hægt er að nota forritið sem venjulegt FM-útvarp til að
hlusta á og vista stöðvar. Einnig er hægt að nota það til
að birta uppýsingar á skjánum sem tengjast því efni sem
hlustað er á, ef útvarpsstöðin býður upp á sjónræna
þjónustu (Visual Radio service). Sjónræn þjónusta
byggir á pakkagögnum (sérþjónusta). Hægt er að hlusta
á útvarpið á sama tíma og önnur forrit tækisins eru notuð.

Hægt er að sjá nýjasta listann yfir allar stöðvar
sem bjóða upp á sjónræna þjónustu á slóðinni
http://www.visualradio.com.

Ef þú hefur ekki aðgang að Visual Radio þjónustunni er ekki
víst að símafyrirtækið eða útvarpsstöðvarnar þar sem þú
ert styðji þjónustuna.

Þjónustuveitan gefur upplýsingar um hvort þjónustan
er tiltæk, kostnað og áskrift.

Yfirleitt er hægt að svara hringingu meðan hlustað er
á útvarpið. Hljóðið er tekið af útvarpinu þegar símtal
fer fram.