Nokia N81 - Vottorðastjórnun

background image

Vottorðastjórnun

Stafræn vottorð tryggja ekki öryggi heldur eru þau notuð
til að staðfesta uppruna hugbúnaðar.

Í aðalskjá vottorðastjórnunar er hægt að opna lista yfir
heimildavottorð sem eru vistuð í tækinu þínu. Ýttu á

til

að skoða lista yfir persónuleg vottorð, ef hann er til staðar.

background image

Stillingar

114

Nota ætti stafræn vottorð ef tengjast á netbanka, öðru
vefsvæði eða miðlara þar sem trúnaðarupplýsingar eru
sendar. Einnig ætti að nota þau til að minnka hættuna
á vírusum eða öðrum skaðlegum hugbúnaði og tryggja
áreiðanleika hugbúnaðar sem hlaðið er niður af netinu
og settur upp.

Mikilvægt: Þó að notkun vottorða dragi verulega úr

þeirri áhættu sem fylgir fjartengingum og uppsetningu
hugbúnaðar verður að nota þau rétt svo að aukið
öryggi fáist. Tilvist vottorðs er engin vörn ein og sér.
Vottorðastjórinn verður að vera með rétt, sannvottuð
eða tryggileg vottorð svo að aukið öryggi fáist. Vottorð
eru bundin tilteknum tíma. Ef textinn „Útrunnið
vottorð“ eða „Vottorðið hefur enn ekki tekið gildi“
birtist þó svo að vottorðið ætti að vera gilt skal athuga
hvort rétt dag- og tímasetning er á tækinu.

Áður en vottorðsstillingum er breytt þarf að ganga úr
skugga um að örugglega megi treysta eiganda þess og
að það tilheyri í raun eigandanum sem tilgreindur er.

Upplýsingar um vottorð skoðaðar—áreiðanleiki
kannaður

Þú getur aðeins verið viss um rétt auðkenni miðlara þegar
búið er að kanna undirskrift og gildistíma
miðlaravottorðsins.

Látið er vita ef uppruni miðlarans er ekki staðfestur eða
ef tækið inniheldur ekki er rétt öryggisvottorð.

Upplýsingar um vottorð eru skoðaðar með því að fletta
að því og velja

Valkostir

>

Upplýs. um vottorð

. Þegar

upplýsingar um vottorð eru opnaðar er gildi vottorðsins
kannað og einhver af eftirfarandi athugasemdum
getur birst:

Vottorði ekki treyst

—Þú hefur ekki valið vottorðið

fyrir nein forrit. Sjá „Trauststillingum breytt“ á bls. 114.

Vottorð útrunnið

—Gildistími vottorðsins hefur

runnið út.

Vottorð ekki enn gilt

—Gildistími vottorðsins er

ekki runninn upp.

Vottorð skemmt

—Ekki er hægt að nota vottorðið.

Hafðu samband við útgefanda vottorðsins.

Trauststillingum breytt

Áður en vottorðsstillingum er breytt þarf að ganga úr
skugga um að örugglega megi treysta eiganda þess og
að það tilheyri í raun eigandanum sem tilgreindur er.

Flettu að heimildavottorði og veldu

Valkostir

>

Stillingar

f. traust

. Listi, sem fer eftir vottorðinu sem valið er, birtist

yfir forritin sem geta notað það. Dæmi:

Symbian-uppsetning

:

—Vottorðið getur sannreynt

uppruna nýs Symbian-stýrikerfisforrits.

Internet

:

—Vottorðið getur sannreynt miðlara.

Uppsetning forrita

:

—Vottorðið getur sannreynt

uppruna nýs Java

forrits.

Veldu

Valkostir

>

Breyta still. f. traust

til að breyta

gildinu.

background image

Stillingar

115

Öryggiseining

Til að skoða eða breyta öryggiseiningu (ef hún er í boði)
í

Öryggiseining

skaltu fletta að henni og ýta

á skruntakkann. Flettu að öryggiseiningu og veldu

Valkostir

>

Öryggisupplýsingar

til að skoða nánari

upplýsingar um hana.