Nokia N81 - Útskýringar á PIN-númerum og númerum fyrir læsingu

background image

Útskýringar á PIN-númerum og númerum
fyrir læsingu

Hafðu samband við þjónustuveituna þína ef þú gleymir
einhverjum af þessum númerum.

PIN-númer—Númerið hindrar að SIM-kortið sé notað
í leyfisleysi. PIN-númerið (4 til 8 tölustafir) fylgir yfirleitt
með SIM-kortinu. Þegar PIN-númerið er slegið rangt inn
þrisvar sinnum er númerinu lokað og þá þarf að slá inn
PUK-númerið til að opna það.

UPIN-númer—Númerið kann að fylgja með USIM-kortinu.
USIM-kortið er endurbætt gerð SIM-korts til að nota
í UMTS-farsímum.

PIN2-númer—Númerið (4 til 8 tölustafir) fylgir sumum
SIM-kortum og er nauðsynlegt til að geta notað suma
valkosti tækisins.

Læsingarnúmer (einnig þekkt sem öryggisnúmer)—Hægt er
að nota þetta númer (5 tölustafi) til að læsa tækinu og
hindra þannig að það sé notað í leyfisleysi. Upphaflega
númerið fyrir læsingu er 12345. Breyttu númerinu fyrir
læsingu til að koma í veg fyrir óleyfilega notkun tækisins.
Haltu nýja númerinu leyndu og á öruggum stað fjarri
tækinu. Hafa skal samband við þjónustuveituna ef einhver
af þessum númerum glatast.

PUK- og PUK2-númer—Þessi númer (8 tölustafir)
eru nauðsynleg til að breyta lokuðu PIN-númeri eða
PIN2-númeri. Ef númerin fylgja ekki með SIM-kortinu
skaltu hafa samband við þjónustuveituna sem lét þig fá
SIM-kortið.

UPUK-númer—Þetta númer (8 tölustafir) er nauðsynlegt til
að breyta lokuðu UPIN-númeri. Ef númerið fylgir ekki með
USIM-kortinu skaltu hafa samband við þjónustuveituna
sem lét þig fá USIM-kortið.