Nokia N81 - Venjuleg símtöl

background image

Venjuleg símtöl

1

Sláðu inn svæðis- og símanúmerið í biðstöðu.
Tölu er eytt með því að ýta á

.

Ýttu tvisvar sinnum á

til að fá fram + merkið ef

þú vilt hringja til útlanda (kemur í stað alþjóðlega
svæðisnúmersins) og sláðu inn landsnúmerið,
svæðisnúmerið (án 0, ef með þarf) og svo símanúmerið.

2

Ýttu á hringitakkann til að velja númerið.

3

Ýttu á hætta-takkann til að leggja á (eða hætta við að
hringja). Þegar ýtt er á hætta-takkann er símtal rofið,
jafnvel þótt annað forrit sé í gangi.

Hljóðstyrkurinn er stilltur meðan talað er í símann með
hljóðstyrkstakkanum á hlið tækisins. Einnig er hægt að
nota skruntakkann. Ef hljóðstyrkur er stilltur á

Hljóðnemi

af

skaltu fyrst velja

Hljóðn. á

.

Til að hringja úr

Tengiliðir

skaltu ýta á

og velja

Tengiliðir

. Veldu nafnið eða sláðu fyrstu stafi þess inn

í leitarreitinn. Listi yfir þá tengiliði sem passa við það sem
þú slærð inn birtist. Ýttu á hringitakkann til að hringja.

Afrita verður tengiliðina af SIM-kortinu yfir í

Tengiliðir

áður en hægt er að hringja úr tengiliðum. Sjá „Tengiliðir
afritaðir“ á bls. 32.

Til að hringja aftur í númer sem nýlega hefur verið hringt
í skaltu ýta á hringitakkann. Veldu númerið og ýttu aftur
á hringitakkann.

Til að senda mynd eða hreyfimynd með
margmiðlunarboðum til annars þátttakanda símtalsins
skaltu velja

Valkostir

>

Senda MMS

(aðeins í UMTS-

símkerfum). Hægt er að breyta skilaboðunum og velja aðra
viðtakendur áður en þau eru send. Ýttu á hringitakkann til
að senda skrána í samhæft tæki (sérþjónusta).

Til að senda DTMF-tónastrengi (til dæmis lykilorð)
skaltu velja

Valkostir

>

Senda DTMF-tóna

. Sláðu inn

DTMF-strenginn eða leitaðu að honum í

Tengiliðir

.

Til að setja inn biðstafinn (w) eða hléstafinn (p) skaltu ýta
endurtekið á

. Veldu

Í lagi

til að senda tóninn. Hægt er

að bæta DTMF-tónum við

Símanúmer

eða

DTMF-tónar

reiti á tengiliðarspjaldi.

Til að setja símtal í bið meðan innhringingu er svarað
skaltu velja

Valkostir

>

Í bið

. Til að skipta milli símtals

og símtals í bið skaltu velja

Valkostir

>

Víxla

. Til að

koma á tengingu milli símtals og símtals í bið og fara
sjálfur af línunni skaltu velja

Valkostir

>

Færa

.

Ábending! Þegar aðeins eitt símtal er í gangi skaltu

ýta á hringitakkann til að setja það í bið. Símtalinu er
svarað með því að ýta aftur á hringitakkann.

background image

Símtöl

99

Til að beina hljóðinu úr símanum í hátalarann meðan
símtal fer fram skaltu velja

Valkostir

>

Virkja hátalara

.

Ef samhæft Bluetooth-höfuðtól er tengt við tækið og þú
vilt beina hljóðinu yfir í höfuðtólið skaltu velja

Valkostir

>

Virkja höfuðtól

. Til að skipta aftur í yfir í símann skaltu

velja

Valkostir

>

Virkja símtól

.

Viðvörun: Ekki skal halda tækinu nálægt eyranu

þegar hátalarinn er notaður því hljóðstyrkur getur
verið mjög mikill.

Veldu

Valkostir

>

Skipta um

til að ljúka símtali og svara

símtali í bið.

Ef mörg símtöl eru í gangi skaltu velja

Valkostir

>

Slíta öllum símtölum

til að slíta þeim öllum.

Margir þeirra valkosta sem hægt er að nota meðan
á símtali stendur flokkast undir sérþjónustu.

Á vefslóðinni www.nokia.com/support, eða á vefsvæði
Nokia í heimalandi þínu, geturðu fundið upplýsingar um
símafundi og raddstýrða hringingu í auknu útgáfunni af
notendahandbókinni.