Höfuðtól
Hægt er að tengja samhæft 
höfuðtól eða samhæf 
heyrnartól við Nokia AV-tengi 
(3,5 mm) tækisins. Þú gætir 
þurft að velja 
snúrustillinguna.
Ekki skal tengja saman tæki 
sem senda frá sér merki þar 
sem slík getur valdið skemmdum á tækinu. Ekki skal stinga 
spennugjafa í samband við Nokia AV-tengið.
Ef utanaðkomandi tæki eða annað höfuðtól en það 
sem Nokia viðurkennir til notkunar með tækinu er sett 
í samband við Nokia AV-tengi skal gæta sérstaklega að 
hljóðstyrknum.
Viðvörun: Þegar höfuðtólið er notað getur það skert
heyrn á umhverfishljóðum. Ekki skal nota höfuðtólið 
þar sem hætta getur stafað af.
Festu eyrnapúðana við höfuðtólið til að hljómgæðin verði 
sem best.
Ef nota á höfuðtól eða heyrnartól með samhæfri 
fjarstýringu, t.d. Nokia AD-54 millistykkinu, skaltu skaltu 
stinga henni í samband við tengið á tækinu og tengja 
síðan höfuðtólið eða heyrnartólin við hana.
Ekki fylgir hljóðnemi með öllum höfuðtólum. Í símtölum 
skal nota höfuðtól með fjarstýringu eða hljóðnema 
tækisins.
Nokia Audio Controller AD-54 millistykkið er með 
margmiðlunarhljóðstillingu sem er aðeins notuð til að 
stilla hljóðstyrk við spilun tónlistar eða hreyfimynda.
Þegar tilteknir aukahlutir fyrir höfuðtól eru notaðir, 
t.d. Nokia Audio Adapter AD-54 millistykkið skal nota 
hljóðstyrkstakka tækisins til að stilla hljóðstyrkinn 
meðan talað er í símann.
Nokia N81
17