Nokia N81 - Efni samstillt, sótt eða sent

background image

Efni samstillt, sótt eða sent

Eftir fyrsta flutninginn er hægt að velja úr eftirfarandi
til að hefja nýjan flutning, eftir því af hvaða gerð hitt
tækið er:

að samstilla efni milli Nokia N81 og hins tækisins,

ef hið síðarnefnda styður samstillingu. Samstillt er í báðar
áttir. Ef efni er eytt í öðru tækinu eyðist það í báðum
tækjunum. Ekki er hægt að endurheimta eydda hluti
með samstillingu.

að sækja gögn af hinu tækinu og setja í Nokia N81.

Með því móti eru gögn af hinu tækinu flutt yfir
í Nokia N81. Þú kannt að vera beðinn um að geyma
eða eyða upprunalega gögnunum í hinu tækinu, eftir
því af hvaða gerð það er.

til að senda gögn úr Nokia N81 í hitt tækið.

Ef ekki er hægt að flytja efni með

Símaflutningur

, sem

fer eftir gerð hins tækisins, þá er hægt að setja efnið
í

Nokia mappa

í C:\Data\Nokia eða E:\Data\Nokia og flytja

það þaðan. Þegar þú velur möppu til flutnings er efnið
samstillt í samsvarandi möppu í hinu tækinu, og öfugt.

Notaðu flýtivísa til að endurtaka flutning

Að gagnaflutningi loknum er hægt að vista flýtivísi með
flutningsstillingunum á aðalskjánum og þá er hægt að
endurtaka sama flutning síðar.

Til að breyta flýtivísinum skaltu fletta að honum og velja

Valkostir

>

Stillingar flýtivísis

. Til dæmis er hægt að

búa til nýtt nafn eða breyta nafni flýtivísisins.

Notkunarskrá birtist eftir hvern flutning. Hægt er að sjá
notkunarskrá fyrri flutnings með því að fletta að flýtivísi
á aðalskjánum og velja

Valkostir

>

Skoða notkunarskrá

.

Flutningsvandi leystur

Ef efni sem á að flytja hefur verið breytt í báðum tækjunum
reynir tækið sjálfkrafa að fella breytingarnar saman. Ef það
er ekki hægt kemur upp flutningsvandi. Veldu

Skoða hvern

background image

Nokia N81

14

fyrir sig

,

Forg. í þennan síma

eða

Forg. í hinn símann

til

að leysa vandann. Hægt er að fá frekari leiðbeiningar með
því að velja

Valkostir

>

Hjálp

.