Nokia N81 - Myndavél

background image

Myndavél

Í Nokia N81 tækinu eru tvær myndavélar, ein með
hárri upplausn aftan á tækinu (aðalmyndavélin með
landslagsstillingu) og önnur með minni upplausn framan
á því (aukamyndavélin með andlitsmyndastillingu). Hægt
er að nota báðar myndavélarnar til að taka kyrr- og
hreyfimyndir.

Tækið styður allt að 1600x1200 punkta myndupplausn
í aðalmyndavélinni. Myndupplausnin í þessari handbók
getur virst önnur.

Myndirnar og hreyfimyndirnar vistast sjálfkrafa
í möppunni

Myndir

í

Gallerí

Myndir eru teknar á .jpeg

sniði. Hreyfimyndir eru teknar upp á MPEG-4-sniði með
endingunni .mp4 eða 3GPP-sniði með endingunni .3gp
(

Samnýting

). Sjá „Stillingar fyrir hreyfimyndir“ á bls. 61.

Hægt er að senda myndir og hreyfimyndir
í margmiðlunarboðum, sem viðhengi í tölvupósti
eða um Bluetooth-tengingu eða þráðlausa
staðarnetstengingu. Einnig er hægt að hlaða þeim upp
í samhæft netalbúm. Sjá „Samnýting á netinu“ á bls. 51.