Að myndatöku lokinni
Að myndatöku lokinni, skaltu velja úr eftirfarandi 
valkostum á tækjastikunni (aðeins í boði ef 
Sýna
teknar myndir
er stillt á
Kveikt
í kyrrmyndastillingu):
•
Ef þú vilt ekki vista myndina skaltu velja
Eyða
.
•
Til að senda myndina skaltu ýta á hringitakkann eða 
velja 
Senda
. Nánari upplýsingar er að finna í „Skilaboð“
á bls. 34, „Bluetooth-tengingar“ á bls. 72 og 
„Samnýting á netinu“ á bls. 51. Ekki er hægt að velja 
þennan valkost meðan á símtali stendur. Einnig er hægt 
að senda mynd til viðmælanda á meðan símtal fer fram. 
Veldu 
Senda til viðmælanda
(aðeins hægt að velja
á meðan símtal fer fram).
•
Ef merkja á myndir fyrir prentkörfu til prentunar síðar 
skaltu velja 
Setja í Prentkörfu
.
•
Til að senda mynd í samhæft netalbúm skaltu velja
Birta á ...
(aðeins hægt ef þú ert áskrifandi að samhæfu
netalbúmi. Sjá „Samnýting á netinu“ á bls. 51).
Til að nota myndina sem veggfóður í virkum biðham skaltu 
velja 
Valkostir
>
Nota sem veggfóður
.
Til að gera myndina að hringimynd tengiliðs skaltu velja
Valkostir
>
Nota s. tengiliðamynd
.