Nokia N81 - Uppsetning forrita og hugbúnaðar

background image

Uppsetning forrita og hugbúnaðar

táknar .sis-forrit,

Java-forrit,

að forritið hafi

ekki verið sett upp að fullu og

að forritið sé uppsett

á minniskortinu.

Mikilvægt: Aðeins skal setja upp og nota forrit

og annan hugbúnað frá traustum aðilum, t.d. forrit með
Symbian Signed eða forrit sem hafa verið prófuð með
Java Verified

TM

.

Fyrir uppsetningu geturðu gert eftirfarandi:

Til að skoða gerð forritsins, útgáfunúmer og seljanda
eða framleiðanda forritsins skaltu velja

Valkostir

>

Skoða frekari uppl.

.

Til að sjá upplýsingar um öryggisvottorð forritsins
skaltu velja

Vottorð

og síðan

Skoða upplýsingar

.

Sjá „Vottorðastjórnun“ á bls. 113.

Ef þú setur upp skrá sem inniheldur uppfærslu eða
endurbætur á forriti sem þegar er uppsett geturðu
aðeins endurheimt upphaflega forritið ef annað hvort
upphaflega uppsetningarskráin er fyrir hendi, eða
öryggisafrit af öllum hugbúnaðarpakkanum sem var
fjarlægður. Til að endurheimta upphaflega forritið
skaltu fyrst fjarlægja forritið og setja það svo upp
aftur með því að nota upphaflegu uppsetningarskrána
eða öryggisafritið.

Nauðsynlegt er að hafa .jar-skrá til að setja upp
Java-forrit. Ef skrána vantar getur tækið beðið þig
um að hlaða henni niður. Ef enginn aðgangsstaður
er tilgreindur fyrir forritið biður tækið þig um að velja

background image

Forri

t

83

aðgangsstað. Þegar þú hleður niður .jar-skránni
geturðu þurft að slá inn notandanafn og lykilorð
til að fá aðgang að miðlaranum. Þú getur fengið
notandanafn og lykilorð hjá söluaðila eða
framleiðanda forritsins.

1

Til að staðsetja uppsetningarskrá skaltu ýta á

og

velja

Forrit

>

Stj. forrita

. Þú getur einnig leitað í minni

tækisins eða á minniskortinu í

Skr.stj.

, eða opnað

tölvupóst í

Skilaboð

>

Innhólf

sem inniheldur

uppsetningarskrána.

2

Í

Stj. forrita

skaltu velja

Valkostir

>

Setja upp

.

Í öðrum forritum skaltu fletta að uppsetningarskránni
og ýta á

til að hefja uppsetninguna.

Meðan á uppsetningu stendur birtir tækið upplýsingar
um stöðu uppsetningarinnar. Ef þú setur upp forrit án
rafrænnar undirskriftar eða vottorðs birtir tækið
viðvörun. Þú skalt aðeins halda áfram að setja upp
forritið ef þú ert viss um uppruna þess og innihald.

Til að ræsa uppsett forrit skaltu staðsetja það í valmyndinni
og ýta á

. Ef forritið er ekki með sjálfgefna möppu

skilgreinda er það sett upp í möppunni

Forrit

.

Til að sjá hvaða hugbúnaðarpakkar hafa verið settir upp
eða fjarlægðir og hvenær það var gert skaltu velja

Valkostir

>

Skoða notk.skrá

.

Mikilvægt: Tækið styður aðeins eitt

vírusvarnarforrit í einu. Notkun fleiri en eins
vírusvarnarforrits getur haft áhrif á afkastagetu
og virkni tækisins, eða valdið því að það virki ekki.

Uppsetningarskrár (.sis) eru áfram í minni tækisins eftir að
forrit þeirra hafa verið sett upp á minniskorti. Skrárnar geta
tekið mikið minni og valdið því að ekki sé hægt að vista
aðrar skrár. Til að losa um minni skaltu nota Nokia Nseries
PC Suite til að taka öryggisafrit af uppsetningarskrám og
setja afritið á samhæfa tölvu. Að því loknu skaltu nota
Skráarstjórann til að eyða uppsetningarskránum úr minni
tækisins. Sjá „Skráastjóri“ á bls. 68. Ef .sis-skráin er
viðhengi í tölvupósti skaltu eyða skilaboðunum úr
innhólfinu.