Nokia N81 - Stafræn réttindi

background image

Stafræn réttindi

Eigendur efnis kunna að nota mismunandi gerðir
stafrænnar réttindatækni (DRM) til að vernda hugverkarétt
sinn, þ.m.t. höfundarrétt. Þetta tæki notar mismunandi
gerðir stafrænnar tækni til að opna stafrænt varið
efni. Með þessu tæki er hægt að fá aðgang að efni
sem verndað er með WMDRM 10, OMA DRM 1.0 og
OMA DRM 2.0. Ef tiltekinn stafrænn hugbúnaður nær ekki
að verja efni kunna efniseigendur að biðja um að geta slíks
hugbúnaðar til að opna nýtt efni sem er varið með
stafrænum réttindum sé endurvakin. Slíkt kann einnig að
hindra endurnýjun þess stafræns varins efnis sem er þegar
í tækinu. Endurvakning slíks hugbúnaðar hefur ekki
áhrif á notkun efnis sem er verndað með öðrum gerðum
stafrænna réttinda eða notkun efnis sem ekki er verndað
með stafrænum réttindum.

Efni sem er varið með stafrænum réttindum (DRM) fylgir
opnunarlykill sem tilgreinir hvernig hægt er að nota efnið.

Ef tækið er með OMA DRM varið efni skal nota
öryggisafritunaraðgerðina í Nokia Nseries PC Suite til
að taka öryggisafrit af bæði opnunarlyklunum og efninu.
Ef notaðar eru aðrar flutningsaðferðir er ekki víst

background image

Forri

t

93

að opnunarlyklarnir, sem þarf að endursetja ásamt
OMA DRM-vörðu efni eftir að minni tækisins er forsniðið,
verði fluttir með efninu. Einnig gæti þurft að endursetja
opnunarlyklana ef skrár í tækinu skemmast.

Ef tækið inniheldur WMDRM-varið efni glatast það efni
ásamt opnunarlyklum þess ef minni tækisins er forsniðið.
Einnig gætu opnunarlyklarnir og efnið glatast ef skrár
í tækinu skemmast. Glatist opnunarlyklarnir eða efnið
getur það takmarkað möguleikann á að nota efnið aftur.
Þjónustuveitan gefur nánari upplýsingar.

Sumir opnunarlyklar kunna að vera tengdir tilteknu
SIM-korti og aðeins er hægt að fá aðgang að varða
efninu ef SIM-kortið er í tækinu.

Til að skoða opnunarlykla stafrænna réttinda sem eru
vistaðir í tækinu skaltu ýta á

, velja

Forrit

>

Miðlar

>

Opn.lyklar

og úr eftirfarandi:

Gildir lyklar

—Til að skoða lykla sem eru tengdir einni

eða fleiri skrám og lykla sem ekki hafa enn tekið gildi.

Ógildir lyklar

—Til að skoða lykla sem ekki eru gildir;

notkunartímabil miðlunarskráarinnar er útrunnið eða varin
miðlunarskrá er til staðar í tækinu en hún er ekki tengd
opnunarlykli.

Lyklar án notk.

—Til að skoða lykla sem ekki eru tengdir

neinni skrá í tækinu.

Til að kaupa meiri notkun eða lengja notkunartíma
skráarinnar skaltu velja

Valkostir

>

Sækja nýjan lykil

.

Nákvæmar upplýsingar um skrá, t.d. gildistíma hennar og
það hvort hægt sé að senda hana, fást með því að velja
opnunarlykil og ýta á

.