Nokia N81 - Öryggisatriði

background image

Öryggisatriði

Lesið þessar einföldu leiðbeiningar. Sé þeim ekki fylgt getur
það verið hættulegt eða varðað við lög. Lesa skal alla
notendahandbókina til að fá nánari upplýsingar.

ÖRYGGI ÞEGAR KVEIKT ER
Á TÆKINU
Ekki má kveikja á tækinu þar
sem notkun þráðlausra síma er bönnuð eða þar
sem hún kann að valda truflunum eða hættu.

UMFERÐARÖRYGGI GENGUR FYRIR Fara
skal að öllum staðbundnum lögum. Ætíð skal
hafa hendur frjálsar til að stýra ökutækinu við
akstur. Umferðaröryggi skal ganga fyrir í akstri.

TRUFLUN Öll þráðlaus tæki geta verið næm
fyrir truflunum, sem getur haft áhrif á virkni
þeirra.

SLÖKKT SKAL Á SÍMANUM
Á SJÚKRASTOFNUNUM
Virða skal allar takmarkanir. Slökkva
skal á tækinu nálægt lækningabúnaði.

HAFA SKAL SLÖKKT Á SÍMANUM
Í FLUGVÉLUM
Virða skal allar takmarkanir.
Þráðlaus tæki geta valdið truflunum
í flugvélum.

SLÖKKT SKAL Á SÍMANUM ÁÐUR EN
ELDSNEYTI ER TEKIÐ
Ekki nota tækið nærri

eldsneytisdælu. Notist ekki í námunda við
eldsneyti eða sterk efni.

SLÖKKVA SKAL Á SÍMANUM ÞAR SEM
VERIÐ ER AÐ SPRENGJA
Virða skal allar

takmarkanir. Ekki nota tækið þar sem verið
er að sprengja.

NOTIST AF SKYNSEMI Notist aðeins
í hefðbundinni stöðu eins og lýst er
í leiðbeiningum með vörunni. Forðast
skal óþarfa snertingu við loftnetið.

VIÐURKENND ÞJÓNUSTA Aðeins viðurkennt
starfsfólk má setja upp eða gera við þessa vöru.

AUKAHLUTIR OG RAFHLÖÐUR Aðeins má
nota samþykkta aukahluti og rafhlöður. Ekki
má tengja saman ósamhæf tæki.

VATNSHELDNI Tækið er ekki vatnshelt.
Halda skal því þurru.

background image

9

ÖRYGGISAFRIT Muna skal að taka öryggisafrit
eða halda skrá yfir allar mikilvægar upplýsingar
sem geymdar eru í tækinu.

TENGING VIÐ ÖNNUR TÆKI Þegar tækið er
tengt öðru tæki skal lesa notendahandbók með
því vandlega, einkum upplýsingar um öryggi.
Ekki má tengja saman ósamhæf tæki.

NEYÐARSÍMTÖL Tryggja skal að kveikt sé
á símaaðgerðum tækisins og þær séu virkar.
Ýta skal á endatakkann eins oft og þarf til að
hreinsa skjáinn og fara aftur í biðstöðu. Sláðu

inn neyðarnúmerið og ýttu á hringitakkann.
Gefa skal upp staðarákvörðun. Ekki má slíta
símtali fyrr en að fengnu leyfi til þess.

Um tækið

Þráðlausa tækið sem lýst er í þessari handbók er samþykkt
til notkunar í (E)GSM 850, 900, 1800 og 1900 og
UMTS 2100 símkerfunum. Þjónustuveitan gefur nánari
upplýsingar um símkerfi.

Við notkun þessa tækis skal hlíta öllum lögum og virða
staðbundnar venjur, einkalíf og lögmæt réttindi annarra,
þ.m.t. höfundarrétt.

Höfundarréttarvarnir geta komið í veg fyrir að hægt sé
að afrita, breyta, flytja eða framsenda myndir, tónlist
(þ.m.t. hringitóna) og annað efni.

Tækið styður internettengingar og aðrar tengiaðferðir.
Líkt og með tölvur geta vírusar, skaðleg skilaboð og forrit,
ásamt öðru skaðlegu efni haft áhrif á tækið. Gæta skal
varúðar og aðeins opna skilaboð, samþykkja tengibeiðnir,
hlaða niður efni og samþykkja uppsetningar frá traustum
aðilum. Til að auka öryggi tækisins er ráðlegt að setja upp,
nota og uppfæra reglubundið bæði vírusvarnarbúnað,
eldvegg og annan slíkan hugbúnað í tækinu og
tengdum tölvum.

Viðvörun: Við notkun allra aðgerða í þessu tæki,

annarra en vekjara, þarf að vera kveikt á tækinu.
Ekki skal kveikja á tækinu þegar notkun þráðlausra
tækja getur valdið truflun eða hættu.

Skrifstofuforritið styður helstu valkosti Microsoft Word,
PowerPoint og Excel (Microsoft Office 97, 2000 og XP).
Ekki er hægt að skoða eða breyta öllum skráargerðum.

Við lengri aðgerðir eins og samnýtingu hreyfimynda
eða háhraðagagnatengingu getur tækið hitnað. Það er
í flestum tilvikum eðlilegt. Ef tæki vinnur ekki rétt skal
fara með það til næsta viðurkennda þjónustuaðila.

Tækið kann að innihalda bókamerki og tengla að vefsetrum
þriðju aðila. Þú getur einnig heimsótt vefsetur þriðju aðila
um tækið. Vefsetur þriðju aðila tengjast ekki Nokia og
Nokia hvorki hvetur til né tekur ábyrgð á þeim. Ef þú vilt
heimsækja slík setur skaltu beita öryggisráðstöfunum.

Myndirnar í þessari handbók kunna að vera öðruvísi en
á skjá tækisins.

background image

10

Sérþjónusta

Til að hægt sé að nota símann verður áskrift að
þjónustuveitu að vera fyrir hendi. Margir af valkostum
símans flokkast undir sérþjónustu. Ekki er hægt að nota
þessa valkosti í öllum símkerfum. Í öðrum símkerfum kann
jafnframt að vera farið fram á sérstaka skráningu fyrir
þessari þjónustu. Leiðbeiningar ásamt upplýsingum um
gjald fyrir þjónustuna fást hjá þjónustuveitu. Sum símkerfi
kunna að hafa takmarkanir sem hafa áhrif á hvernig hægt
er að nota sérþjónustu. Sum símkerfi styðja t.d. ekki alla
séríslenska bókstafi og þjónustu.

Þjónustuveitan kann að hafa beðið um að tilteknar
aðgerðir væru hafðar óvirkar eða ekki gerðar virkar
í tækinu. Ef svo er birtast þær ekki í valmynd tækisins.
Tækið kann einnig að hafa verið sérstillt, t.d. kann
heitum, röð og táknum valmynda að hafa verið breytt.
Þjónustuveitan gefur nánari upplýsingar.

Þetta tæki styður WAP 2.0 samskiptareglur (HTTP og SSL)
sem keyra á TCP/IP samskiptareglum. Sumar aðgerðir þessa
tækis, svo sem MMS, netvafri og tölvupóstur krefjast
símkerfisstuðnings við þessa tækni.

Aukahlutir, rafhlöður
og hleðslutæki

Alltaf skal slökkva á tækinu og aftengja hleðslutækið áður
en rafhlaðan er fjarlægð.

Athuga ber tegundarnúmer hleðslutækja áður en þau eru
notuð með þessu tæki. Þetta tæki er ætlað til notkunar
hlaðið raforku frá AC-3, AC-4 eða AC-5 hleðslutæki og
frá AC-1, ACP-8, ACP-9, ACP-12 eða LCH-12 hleðslutæki
þegar það er notað með CA-44 millistykki.

Rafhlaðan sem ætluð er til notkunar með þessu tæki er
BP-6MT.

Viðvörun: Aðeins skal nota rafhlöður, hleðslutæki

og aukahluti sem Nokia hefur samþykkt til nota með
þessari tilteknu tegund. Ef notaðar eru aðrar gerðir
gæti öll ábyrgð og samþykki fallið niður og slíkri
notkun getur fylgt hætta.

Seljandi símans veitir upplýsingar um fáanlega aukahluti
sem samþykktir eru til notkunar. Þegar aukahlutur er
tekinn úr sambandi skal taka í klóna, ekki leiðsluna.

background image

Stuðningur við notend

ur

11